Mér finnst þetta ógó fyndið 
Allir eru á hlaupum nema Svabbi, hann er á labbi!
Allir eru mjóir nema Inga, hún er að springa!
Allir eru veski nema Gudda, hún er budda!
Allir hafa stelpu nema Arnar, þær eru allar farnar!
Allir eiga flotta peysu nema Tóta, hún á ljóta!
Allir eru kúl nema Ebbi, hann er plebbi!
Allir voru að prumpa nema Beta, hún var að freta!
Allir eru í pottinum nema Mundi, hann er í sundi!
Allir eru dollur nema Birna, hún er hyrna!
Allir eru pottar nema Anna, hún er panna!
Allir eru að spara nema Hulda, hún er að skulda!
Allir eru druslur nema Maggi, hann er kaggi!
Allir eru að sleikja nema Eva, hún er að slefa!
Allir eru með skakkar tennur nema Einar, hann er með
beinar!
Allir eiga vín nema Þóra, hún á bjóra!
Allir eiga baujur nema Helgi, hann á belgi!
Allir eiga grjót nema Sveina, hún á steina!
Allir eru þrestir nema Jói, hann er spói!
Allir eru skemmtilegir nema Stína, hún er pína!
Allir henda nema Heimir, hann geymir!
Allir vilja svarta nema Rúna, hún vill brúna!
Allir eiga moppu nema Ágúst, hann á strákúst!
Allir eru í formúlunni nema Vallý, hún er í rallý!
Allir eru augu nema Unnur, hún er munnur!
Allir eiga nagla nema Finna, hún á pinna!
Allir eru úr stáli nema Árni, hann er úr járni!
Allir vilja hjóla nema Dabba, hún vill labba!
Allir eru að horfa á sjónvarpið nema Lind - hún er
blind.
Allir eru að spila á gítar nema Gvendur - hann hefur engar
hendur!
Allir eru að spila körfubolta nema Bergur - hann er
dvergur.
Helstu fréttir héðan úr ritbúðum lokaverkefnis eru að helv...
lokaverkefninu var skilað (svona að mestu) í dag (kvöld kl. 19).
Maraþoninu er þó ekki alveg lokið því ég á enn eftir að skrifa
útdrátt á ensku, fatta hvernig á að gera eina skitna skýringarmynd
og svo fá verkefnið aftur til baka til að gera einu sinni enn
leiðréttingar ef þarf.... Boring
það er þó farið að sjá fyrir
endan á þessu því kynningin er eftir nákvæmlega tvær vikur og þá
ætla ég að vera búin með allt tengt þessu helv... lokaverkefni svo
ég geti bara skilað pakkanum af mér og vonandi farið að fagna
vorinu með öllum geðveikt stóru hlussu randaflugunum
DDV fréttir !!! Back in buisness á morgun - engin afsökun
lengur, prófin búin, ritgerðin langt komin og bara sól og sæla
framundan 